Náðu tökum á streitunni – valdefling og styrkleikar

Námskeiðið byggir á aðferðum sem hjálpa okkur að byggja upp sjálfsöryggi, streituþol og jafnvægi með því að auka skilning og þekkingu á huga, taugakerfi, skynjun og tilfinningaviðbrögðum. Við skoðum leiðir sem nýtast til að hjálpa okkur auka sjálfstraust og sjálfsvirðingu og byggja upp heilbrigð tengsl, bæði við okkur sjálf og aðra. Aðferðirnar nýtast til byggja upp seiglu, og heilbrigð samskipti einstaklinga í hópum.

Við veltum fyrir okkur meðvirkni og streituviðbrögðum og hvernig hægt er að temja sér jákvæð viðhorf í eigin garð og standa með gildum sínum þegar á reynir í samskiptum eða leysa þarf ágreining. Við skoðum hvað veldur því að þættir eins og langvarandi streita, fullkomnunarárátta, fórnarhegðun og sjálfsniðurrif ná tökum á okkur. Við förum yfir hvernig við getum haldið jafnvægi á taugakerfi, beint athyglinni að styrkleikum og kostum, valið viðbragð og byggt upp styrkleikamkiðað andrúmsloft.

Þátttakendur kynnast aðferðum sem vinna með taugakerfinu, hjálpa okkur að átta okkur á og aftengjast óheppilegum hugsana- og vanamynstrum og ná stjórn á varnarviðbrögðum með því að taka eftir og gangast við öllum okkar tilfinningum og hugsunum með sjálfsumhyggju, uppbyggingu og vinsemd að leiðarljósi.
Gerðar verða jógaæfingar og jóga nidra hugleiðslur sem samanstanda af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum. Þessar æfingar eru sérhannaðar til þess að slaka djúpt á huga og líkama.

Umfjöllunarefni
  • Hugarfarið – viðhorf, vagustaug, tilfinningar og viðbrögð
  • Meðvirkni, streita – taugakerfið, hamingjuhormón og núvitund
  • Styrkleikamiðað starfsumhverfi – virðing og mörk
  • Grunnviðhorf – gildi og styrkleikar - ytra virði og innra virði
Verkfæri
  • Núvitund – FEMÁ módel (heildræn nálgun)
  • Uppbyggingarkenningar jákvæðrar sálfræði
  • ACT – upplifunaræfingar
  • Jóga og hugleiðsla – joga nidra slökun
Ávinningur
  • Jákvæðara hugarfar, aukin orka og seigla
  • Heilbrigðari samskipti og tengsl
  • Aukið sjálfstraust - fókus á styrkleika og innri gildi
  • Aukið jafnvægi, sveigjanleiki og mildi