Árangursrík samskipti & sjálfstyrking
Í þessum fyrirlestri er fjallað um samskipti og tengsl bæði við okkur sjálf og aðra og grunnþættir árangursríkra samskipta skoðaðir. Fjallað er um mikilvægi uppbyggilegra samskipta með áherslu á:
- virka hlustun og forvitni
- að lesa í tilfinningar bak við orð
- að takast á við álag
- að standa með gildum sínum og vera hluti af heild
Við skoðum módel sem hjálpa okkur að átta okkur á ósjálfráðum varnarviðbrögðum og hvernig aukin sjálfsþekking hjálpar okkur að ná tökum á þeim og setja heilbrigð mörk undir álagi eða þegar eitthvað kemur upp á í samskiptum.
Við förum yfir hvernig einelti/samskiptavandi þróast ef við erum ekki meðvituð og hvernig við getum lagt okkar af mörkum til að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu með auknum skilningi á samskiptastíl, egói, taugakerfi og viðbrögðum.
Við skoðum einnig hvernig við getum nýtt verkfæri jákvæðrar sálfræði, styrkleika, virka hlustun og mildi til að auka sjálfstraust og efla heilbrigð tengsl.
Umfjöllunarefni
- árangursrík samskipti og samskiptafærni
- virkri hlustun og líkamstjáning
- egó, taugakerfi og streitulosun í flóknum samskiptum
- sjálfstraust, metnaður og mörk
Ávinningur
- aukið sjálfstraust og metnaður
- aukin færni að lesa í tilfinningar og líkamstjáningu
- aukin færni í að koma skilaboðum skýrt og fallega á framfæri
- aukin sjálfsvirðing og skýrari mörk