Jafnvægi & jákvæð samskipti

Leiðir að meiri hugarró og hugrekki

Lífslyst býður upp á fræðslu og námskeið sem hjálpa fólki að skilja betur eigin tilfinningar, efla sjálfstraust og seiglu, styrkja heilbrigð samskipti og auka vellíðan í lífi og starfi.
Lífslyst hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða fyrir einstaklinga, vinnustaði, félagasamtök, verkalýðsfélög, klúbba og geðræktarmiðstöðvar.

Vinsæl námskeið & fyrirlestrar fyrir vinnustaði og hópa

Fyrirlestur

Aukin vellíðan – bætt samskipti

Í þessum fyrirlestri skoðum við hvernig samspili hugar og líkama getur haft áhrif á líðan, samskipti og sjálfsöryggi.
Við skoðum hvernig aukinn skilningur á starfsemi og tengingu hugar, tilfinninga, líkama og taugakerfis getur dregið úr neikvæðum áhrifum streitu og hættu á yfirkeyrslu.

Nánar

Námskeið

Heilbrigð samskipti og mörk

Námskeiðið fjallar um samskipti, tengsl og tengslamyndun og hvernig atferli og viðbrögð hafa áhrif á þróun samskipta. Við skoðum virka hlustun, tilfinningaviðbrögð og kveikjur og hvernig atferli okkar og viðhorf geta skipt sköpum í þróun samskipta.  

Nánar

Námskeið

Leið að betri líðan

Á þessu námskeiði færðu innsýn og verkfæri sem hjálpa þér að styrkja þig og byggja upp jákvæðari og árangursríkari samskipti.

Lögð áhersla á að efla sjálfstraust, seiglu og innra jafnvægi með auknum skilningi á huga, taugakerfi, tilfinningum og viðbrögðum.

Nánar

Námskeið

Samskipti og sjálfsmynd barna

Lífslyst býður upp á fræðslu fyrir þá sem vinna með börn og vilja efla uppbyggileg samskipti og styrkja jákvæða sjálfsmynd þeirra.

Á fyrirlestrum og námskeiðum er lögð áhersla á að skapa tilfinningalegt öryggi í
samskiptum og styðja börn í að þróa sjálfstraust, samkennd og trú á eigin getu.

Nánar
  • Edda

    Ég vil þakka þér fyrir frábært námskeið í Búdapest. Ég hef lesið mér til og farið á stutt námskeið um jákvæða sálfræði. Það kom mér á óvart hvað ég lærði mikið aukalega. Ég náði að vinna svo mikið í sjálfri mér og er strax að nýta mér allt sem ég lærði daglega. Við vinnufélagarnir sem fórum saman út tölum mikið saman um námskeiðið. Það skilur svo mikið eftir sig.

  • Þórarinn

    Þetta er eitthvert það besta námskeið sem ég hef farið á og hef ég þó farið á þau mörg býsna góð. Ég vil sjá þetta notað sem forvörn, það er svo mikilvægt að ná til fólks áður en það lendir í kulnun eða örmögnun.

  • Inga

    Það er svo gott að koma til þín, maður fer að sjá hvað maður er að gera margt gott og fer eiginlega bara að trúa að maður geti allt.

1 of 3