Ásthildur Garðarsdóttir

Fræðsla - ráðgjöf - markþjálfun

Lífslyst býður upp á fræðslu um uppbyggileg samskipti, sjálfstraust, jafnvægi og styrkleika og hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða til dæmis fyrir vinnustaði, félagasamtök, verkalýðsfélög, klúbba og geðræktarmiðstöðvar.

Hafa samband

Ásthildur heiti ég og starfa sem fyrirlesari, markþjálfi og jógakennari hjá Lífslyst.

Starf mitt felst í að hjálpa fólki að efla sjálfstraust og innra jafnvægi í meiri sátt við sjálft sig og aðra. Ég legg áherslu á að skapa hlýtt og öruggt rými þar sem tækifæri gefst til að staldra við, skoða eigin styrkleika og færni í nýju ljósi og finna leiðir til að efla velsæld og lífsánægju.

Í gegnum árin hef ég aflað mér þekkingar og vitneskju um velsæld og einnig áhrif áfalla og tengslamyndunar úr æsku á hegðun okkar og líðan. Ég hef lært aðferðir sem styðja við og styrkja uppbyggilegt hugarfar og tilfinningastjórn auk þess að efla kjark og þor til að standa með gildum sínum og setja heilbrigð mörk. Ég vinn með aðferðir og verkfæri jákvæðrar sálfræði, ACT og yoga nidra sem hjálpa fólki að:

  • takast á við streitu og og tilfinningalegt álag
  • efla sjálfstraust og seiglu
  • styrkja tengsl og heilbrigð samskipti
  • öðlast meira jafnvægi og sjálfsskilning

Markmið mitt er að hjálpa fólki að skilja betur mennskuna, uppgötva eigin styrkleika og finna leiðir til að lifa lífi sem er samræmi við það sem hefur þýðingu og tilgang.

MENNTUN:
- Meistaragráða í jákvæðri sálfræði
Árósarháskóli – 2018
- B.Ed kennaramenntun
Kennaraháskóli Íslands – 2001

HAGNÝT VIÐBÓTARMENNTUN:
-
Áfallajóga kennsluréttindi og framhaldsnám í Yin Yoga (2026)
- Yoga Nidra Advanced Training – Amrit Yoga Institute (2025)
- Jógakennari (2024)
- Yoga Nidra & Yin Yoga kennsluréttindi (2022)
- ACT meðferðarform – grunnnám (2022)
- Markþjálfi (2021)

Jákvæð sálfræði

Jákvæð sálfræði er í stuttu máli sagt vísindi um ákjósanlega, mannlega funksjón. Vísindi um það hvernig fólk þrífst og hvað þarf til að því farnist vel með áherslu á að læra að þekkja og virkja styrkleika sína og að efla bjartsýnt hugarfar, seiglu og lífsgleði.

Hlutverk jákvæðrar sálfræði er að auka velsæld einstaklinga með því að setja athylgi á það sem vel gengur og vel er gert en einnig að bregðast við neikvæðum tilfinningum og erfiðleikum sem upp koma í lífinu á uppbyggilegan hátt.

Markþjálfun

Markþjálfun er samtal milli markþjálfa og marksækjanda þar sem markþjálfi hvetur marksækjanda til að koma auga á og nýta betur hæfileika sína og möguleika til að blómstra í lífi og starfi.

Hlutverk markþjálfa er að leiða okkur áfram með spurningum sem fá okkur til að horfa inn á við og sjá hlutina og okkur sjálf í nýju ljósi – Spurningar sem hjálpa okkur að ná utan um og móta viðfangsefni, átta okkur á hvað við viljum og draga fram það besta í okkur.

ACT

ACT (Acceptance and Commitment Therapy) hjálpar okkur að styrkja tengslin við okkur sjálf, gildin okkar og núverandi augnablik.

Með ACT lærum við að takast á við hugsanir og tilfinningar af meiri mildi og sveigjanleika. Markmiðið er að auka sálrænan sveigjanleika og hjálpa okkur að taka skref í átt að lífi sem er í samræmi við það sem skiptir okkur mestu máli.

Yoga Nidra

Yoga Nidra er öflug slökunar- og hugleiðslutækni sem hjálpar okkur að draga úr streitu og kvíða, bætir svefn og skapar jafnvægi.

Markmið Yoga Nidra iðkunar er að róa hugann, ná djúpri slökun og skapa frjálst flæði orku um líkamann, sem gerir honum kleift að heila sig. Með því að róa huga og taugakerfi nær líkaminn að slaka á og ná endurheimt – sem er nauðsynlegt mótvægi við amstur og hraða hversdagsins.

  • Helga

    Námskeiðið fór fram úr öllum mínum vonum og væntingum. Fræðslan var áhugaverð og lögð fram á persónulegan máta, augljóst var að Ásthildur talaði af reynslu. Ég kom heim með hjartað fullt af þakklæti og auðmýkt og augun opnari fyrir fegurð náttúrunnar og tilbúin að sjá alla litlu hlutina í kringum mig og njóta þeirra í núinu. Efnið frá Ásthildi mun ég pottþétt nýta mér bæði í einkalífi og starfi.

  • Móðir 14 ára stelpu

    Ég horfi á stelpuna mína vaxa, hún er orðin miklu öruggari með sig og lætur kvíðann sjaldnar stoppa sig. Þetta er svo mikil uppbygging, ekki bara verið að skoða hvað þarf að laga. Hún þekkir betur styrkleikana sína og er hætt að spá eins mikið í hvað aðrir eru að hugsa.

  • Lilja

    Þetta námskeið ætti að vera skyldunámskeið hjá þeim sem eru í starfsendurhæfingu. Þetta dýpkaði skilning minn á styrkleikum mínum og vanköntum sem koma upp á. Ásthildur kemur efninu vel frá sér. Hún kemur vel undirbúin og full af fróðleik sem hún vill deila með okkur. Þetta námskeið kemur öllum við. Ég myndi segja að það gæti verið fyrirbyggjandi gagnvart kulnun í starfi, einkalífinu og líka í mannlegum samskiptum. Þessi fræði eiga heima á öllum vinnustöðum, félagasamtökum og heimilum. Það verður að opna fyrir þennan fróðleik. Komdu með framhaldsnámsskeið!