Yoga Nidra námskeið á Egilsstöðum
Yoga nidra er djúpslakandi hugleiðslu- og slökunaraðferð sem hjálpar líkama og huga að ná ró og endurheimt.
Í Yoga nidra er þátttakendur leiddir gegnum djúpa slökun þar sem líkaminn fær tækifæri til að hvílast og taugakerfið að jafna sig eftir álag og streitu daglegs lífs.
Aðferðin getur hjálpað okkur að:
- draga úr streitu og kvíða
- bæta svefn og svefngæði
- róa huga og taugakerfi
- auka orku og innra jafnvægi
- auka vellíðan
Í yoga nidra fær líkaminn tækifæri til að endurnýja sig og ná jafnvægi á ný. Regluleg iðkun getur haft jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan.
Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að prófa yoga nidra í fyrsta sinn og þeim sem vilja dýpka eigin slökunariðkun.